bloggensí bloggens
07.07.2006 15:30:51 / rakelgud

mongó bongó

Já ég er búin að vera í smá blogg fríi, en tók ákvörðun um að skrifa nokkrar línur.

Ég er búin að vera reyklaus í 5 daga, án þess að nota plástur. tyggjo eða nikotin-nefúða. Jább jább, ég er að taka þetta alveg glæsilega og mér gengur ógéðslega vel...samt búið að vera erfitt, líkamleg og andleg fráhvörf. En þessi dagur í dag er búinn að vera bestur, ekki svo mikill svimi og ekki svo mikil óþægindi. Endilega óskið mér til hamingju með árangurinn hingað til. En ég er sko endanlega hætt! 8)

Ég þarf að kaupa mér digital myndavél og hátalara. Ég er búin að vera hlusta á Massive attack, guns n roses og alice in chains í allan dag í tölvunni með alltof litlu hljóði. Nú þarf ég hátalara og meiri kraft í þetta.

alltaf að spekúlera í íbúðum...og húsgögnum...

Ég er á leiðinni í Byko að kaupa gull-glimmer spray, þarf að spreyja á þurrkaða blómavendi sem ég geymi, gjafir frá herramönnum í gegnum tíðina, ætla að fríska aðeins upp á safnið og setja í sæta körfu. Mér finnst þurrkuð blóm með gull glimmer ógéðslega töff ;)

Var boðin í grill partý í kvöld og fleira skemmtilegt.

En ég hef þetta ekki lengra í bili, skal blogga frá skemmtilegheitum helgarinnar, reyklaus og full af súrefni og orku...

p.s. mig langar í rauðleit upphá leðurstígvél með ólum sem hægt er að þrengja upp kálfann og verður að vera með hæl og kúptri tá. Ef einhver sér svona, let me know!


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.06.2006 22:30:31 / rakelgud

bimbi rimbi bimbamm

Tjáningaguðirnir hafa ekki verið mér hliðhollir að undanförnu, búið að vera mikið að gera og svona þannig að ég skrifa þetta blogg yfirburða andlaus. Ég sit hérna með harðann maska í andliti, setti líka maska á bólurnar á bakinu og tók eftir því í speglinum að ég hef aldrei verið feitari, tók 3 skref aftur á bak þar sem vigtin er staðsett í horninu á baðherberginu, undir gamalli innréttingu og fékk það staðfest, ég hef aldrei verið feitari.                                      

ég er búin að vera með ósýnilega fílapensla á kjálkunum, kannski eru þetta fitu fílapenslar? Ég viðurkenni það að ég kann barasta ekki að vera feit og mér líður eins og Bridget Jones í allri hennar dýrð.

hahahha og nú hlæ ég innan í mér því maskinn er orðinn harður, þá man ég eftir því að Anna Soffía bloggaði fyrir ekki svo löngu þegar hún var sjálf með maska og fór að "blaka annarri nösinni og maskinn molnaði útum allt og varð að þyrlandi ryk dufti..." hahhahhahahah mér fannst það svo fyndið.

En ég efast um að þessi maski virki, nema ég sofi með hann í nótt, svo hann verði samvaxinn húð minni og þá get ég mulið maskann úr andlitinu í fyrramálið og vonandi dettur andlitið af í leiðinni.

p.s. held ég sé að fara byrja á túr, þetta er týpískt túr attítut. kannski kannast einhver við að verða svona líka??

p.s. var að ljúka við bók sem heitir "einhvernskonar ég" eftir Þráinn Bertelsson og ég mæli með henni! ;)

p.s. Ég er að leita mér að annarri bók til að lesa og hlakka til að vera bókaormur í allt sumar

p.s. ég er að fíla i botn að gömlu Beverly Hills þættirnir séu endurdsýndir :haha:

p.s. 17 júní er ekki á morgun heldur hinn


» 14 hafa sagt sína skoðun

07.06.2006 20:52:55 / rakelgud

ókrýnd pravda prinsessa kannski?

Það var hringt í mig í gær og ég var beðin um að taka þátt í Pravda prinsessu keppni sem er haldin næsta laugardag. Eins og sumir vita þá var ég eitt laugardagskvöldið að skemmta mér og var þá dregin í VIP herbergið í myndatöku, fékk sko bjór í staðinn svo ég sló til. Ég og þrjár aðrar birtumst í næsta Sirkus blaði, sú vann sem fékk sem flest sms kosningu. Enginn af vinum mínum kaus held ég, allavega var nú bara hlegið og spurt hvort ég hefði verið á Pravda ;) en ég vann sem sagt ekki, einhver önnur vann. Sú stúlka gat svo ekki verið með og þá var hringt í mig því ég var víst númer 2. Veit nú ekki hvernig stendur á því.

Þannig að ég var beðin um þetta, ég var upptekin þegar símtalið barst mér og svaraði bara "já já" mætti svo í gærkvöldi í myndatöku og fór að spyrja nánar útí keppnina. Þá áttum við sem sagt að auglýsa ákveðið áfengi, og skemmtistaðinn Pravda og líka einhverja fatabúð... en við fengum ekkert í staðinn, nema þessa ómældu ánægju að fá að vera með. Þannig að það var verið að auglýsa alveg helling, ókeypis. Eitt sms til að kjósa eina stelpu áfram kostar 99 krónur. Við áttum að fá 30 boðsmiða á mann fyrir alla sem við þekkjum til að koma og kjósa okkur áfram. Sem sagt heilmikið peningastúss í kringum þetta nema við áttum að vera þarna í ókeypis vinnu í rauninni. Reyndar er einhver vinningur í boði fyrir þessa einu sem að vinnur, þessa sem á sem flesta vini sem kýs hana áfram... en æi kommon. Ég sagði bara pent nei takk:!:

Það sem mér fannst vera glataðast var að við áttum að labba upp á barborðinu, að mér skildist, og svo seinna um kvöldið reyna "kaupa" atkvæði af strákunum með því að gefa þeim bjór í staðinn fyrir atkvæði. Það er eitthvað niðurlægjandi við þetta.

Allavega fannst mér þetta mjög óspennandi þegar á botninn var hvolft og nennti þessu bara ekki. Og er fegin að ég hætti við. Það verður bara einhver önnur sem mun vera svakalega glöð að fá að vera með í þessu. ókeypis. ´Tíminn minn er ekki ókeypis.

jebbs.


» 7 hafa sagt sína skoðun

05.06.2006 18:28:49 / rakelgud

YES

Umsókn mín í Háskóla Íslands var samþykkt og ég er ótrúlega glöð!!!

Ég er búin að vera svo glöð að ég er búin að éta yfir mig af tómötum og gulrótum. Tók labbitúr í tæpa 2 klst með Hildi Hrönn og hafði vit á því að hafa kerruna með því ég vissi að snúllan mín myndi verða þreytt, hef sko oft lent í því að þurfa bera hana á bakinu og verið með þursabit í marga daga. En við fengum okkur helling af frísku lofti og tókum með nesti. Það var ótrúlega næs.

Sjáðu til, nú er ég sko byrjuð á smá líkamsrækt og labbitúr er mjög góð þjálfun fyrir líkamann. Ég held líka dagbók yfir mataræði mitt svo ég get fylgst með því hvað ég er að setja ofan í mig. Ætla að byrja að vera heilbrigð og labba mikið í sumar, svo þegar ég nenni þá ætla ég að lyfta pínu lítið. Annars held ég að magaæfingar og armbeyjur og labbitúrar verði mín hreyfing...svo þegar ég verð tilbúin þá hætti ég að reykja. Það er ekki kúl að reykja. Ónei. En í gamla daga þegar ég var að byrja að reykja þá fannst mér það kúl, því mér fannst það þýða að ég væri ógéðslega frjáls og kærulaus týpa og þess háttar, svona hippi. Bara asnalegt! Svo varð ég náttúrulega háð þessu og búin að finnast ég vera asnaleg með reykingahósta og sjúkdómahræðslu í allt allt allt of langan tíma. En þetta brestur á. Yes sörrí bob. Reyklaus is on my to do list... eins og margt annað reyndar. :$

En ég er í sæluvímu því mér finnst kúl að vera í Háskólanum, hlakka til að vera reyklaus og lærandi eins og mó-fó.  8) :lol:  :haha:

takk fyrir mig :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 13:47:06 / rakelgud

karlmenn

Ég átti áhugaverðar rökræður við vinkonu mína um daginn.

Hún hefur þá skoðun að ef karlmaður sem er í hjónabandi/sambúð heldur framhjá konu sinni, þá er það konunni að kenna sem að "flekar manninn". En það er ekki viðhaldinu að kenna ef maðurinn heldur framhjá ef hún veit ekki betur ef maðurinn er á lausu. Þá er það manninum að kenna því hann er ekki að koma hreint fram. En annars finnst þessi vinkona mín það vera skylda allra kvenna að ganga úr skugga um að maðurinn sé á lausu áður en farið er heim með honum og undir sæng. Konur eiga að passa uppá kynsystur sínar.

Þessi umrædda vinkona mín lítur svo á að karlmenn séu mjög einfaldar verur sem freistast auðveldlega og að konur hafi skyldum að gegna gagnvart kynsystrum sínum. Og þar sem konur vita það að menn eru tilbúnir að halda framhjá, séu þeir æstir nægilega mikið upp...þá eiga konur að vita betur og láta menn sem eru í sambandi í friði!

Þannig að ef maður reynir við konu, en tekur það samt heiðarlega fram að hann eigi kerlingu (og hugsanlega fer að væla yfir því að sambandið sé ómögulegt... sem er mjög týpískt fyrir karlmenn sem fara út á galeiðuna að þefa af öðrum konum..) þá ber konan ábyrgð á því að láta þennan mann í friði, í virðingaskyni við konu þessa manns. Ef kona fer að stunda kynlíf með manni sem hún veit að er ekki á lausu... þá megi hún gjörsvovel að skammast sín og hafa það á samviskunni að nú hafi hún sett blett á samband mannsins með því að vera búin að sofa hjá lofuðum manni.

Það sama gildir ekki um konur sem halda framhjá mönnum sínum, nefnilega vegna þess að konur eru skynsemisverur sem vita hvað þær gera. Ef kona heldur framhjá manni sínum þá er það henni sjálfri að kenna. Sem sagt algjör andstæða við það sem ég skrifa hér á undan.

Ég heyrði þessa rökfærslu, ég virði þessa skoðun, en ég er ósammála!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Ég verð nú að segja fyrir mitt leyti...  að mér finnst karlmaðurinn, og eingöngu karlmaðurinn bera ábyrgð, þar sem það er HANN sem er skuldbundinn sinni konu í sambandi sínu, einhver kona útí bæ á ekki að geta raskað þessu trausti. Það er hann sem brýtur traust við konu sína og svíkur en ekki einhver kona útí bæ. Það er hann sem mun þurfa bera sektarkennd yfir gjörðum sínum, það er hann sem fór út fyrir mörk velsæmismarka sambandsins og býður annari konu upp á sitt heilagasta sem átti að vera innsiglað með trausti innan í sínu sambandi... Það sama gildir fyrir konur sem halda framhjá sínum mönnum-þær bera ábyrgð á því.

Og ef sambandið er komið á það stig að það er verið að girnast annað fólk í huga og hjarta, (þar byrjar andlegt daður við framhjáhald...) þá finnst mér að eigi annað hvort að slíta sambandinu á þessum tímapunkti, eða hreinlega setjast niður með maka sínum og ræða hreinskilningslega allar tilfinningar og vandamál, taka svo ákvarðanir um hvað á að gera til að toga sambandið upp úr þessum skítapolli sem það virðist vera fara drukkna í. 

Því ekkert réttlætir framhjáhald. Sama hversu fullur/full viðkomandi var, sama hversu miklar krísur voru í gangi í sambandinu... mér er alveg sama, það réttlætir ekkert framhjáhald. Þetta er almenn regla í flestum samböndum sem er ætlast til að sé farið eftir, nema að parið hafi munnlegt samkomulag um að bólfélagar séu velkomnir. Eins og virðist vera hjá mörgum pörum og ekkert leynilegt með það sbr. hin frægu hjónakorn Egill Olafsson og kona hans Tinna (veit reyndar ekki hvort það sé opinbert með þeirra samkomulag en virðist samt sem áður vera vitneskja margra að svona samkomulag hljóti að vera á milli þeirra hjóna) Allt gott og blessað með það. En annars, nei.

Það er mjög sorglegt þegar fólk gengur í gegnum skin og skúrir í sínu sambandi en veit ekki að makinn hafi verið að stunda kynlíf annarsstaðar þegar skúrir gengu yfir í sambandinu.

Einnig er ég á móti því að fólk sem er í sambandi eigi tilfinningalegt samband við fólk af gagnstæðu kyni, það hefur margoft sýnt sig að það býður hættunni heim. Kynorkan er svo sterk gott fólk, þess vegna borgar sig að beina henni að þeim sem á að vera meintur elskhugi manns. Það eru hættulegar tilfinningar sem fylgja kynorkunni eins og t.d. afbrýðisemi, vantraust, reiði, hatur, ást, og m.fl.. Þess vegna getur saklaust daður við utanaðkomandi aðila þýtt eld og brennistein innan í sambandinu... já það hafa verið framin ófá morðin í gegnum aldirnar, sem hefur beinlínist tengst þessum tilfinningum. Spáðu í því. Þess vegna skiptir miklu máli að fólk hafi skynsemi og hreinar skoðanir um þessa hluti.

Hvað finnst fólki um þetta og getur það verið að fleiri hafi svona ábyrgðalausar skoðanir gagnvart sambandi almennt... að það sé hægt að líta á allan heiminn sem sökudólg frekar en manninn sem er bundinn skyldu í sambandi, í skugga þess að karlmenn eru heimsk dýr sem hugsa bara með tippinu?

Vinkona mín er ein af þeim sem myndi fara ráðast á konuna sem væri í ástaratlotum við manninn hennar í hjónarúminu. Og viðurkenndi það fúslega.

Í mínum huga þá gef ég karlmönnum aðeins meira credit og ætlast til að þeir séu viti bornar verur, viti hvað er rétt og rangt og geta tekið ábyrgð á sínum mistökum á eigin spítur. Alveg sama hvaða tussa reynir við þá. Og hananú!


» 12 hafa sagt sína skoðun

27.05.2006 02:53:05 / rakelgud

allt eitt stórt samsæri

Ég er að hugsa um davinci lykilinn. Mér finnst þetta soldið flott samsæriskenning. Allavega kaupi ég það að Jesú hafi verið mannlegur en ekki að Guð hafi sent engil til að frjóvga hreina mey sem hét María.Og að Jesús hafi verið maður, með mannlega hegðun eins og til dæmis að hann hafi átt konu, sem hann reið og átti með henni börn. Trúlega er það þessi Magdalena sem kirkjan kallaði hóru því þá mátti ekki saurga orðspor svo merkislegs manns sem Jesú að sjálfsögðu var. Mér finnst líka trúlegt að kirkjan hafi haldið því fram að hann hafi verið heilagur og sendur til jarðar frá Drottni, frekar en að jesú hafi "bara" verið maður og ég get alveg trúað því að það hafi verið myrt í tilefni af því. Það er samt algjör þversögn við kristna trú að myrða náungann, eftir því sem ég best veit um kristni þá á sannur guðs maður að fyrirgefa náunganum og rétta heimskum ofbeldisseggi hinn vangann ef annar vangi er sleginn...

Það má nú samt ekki gleyma því að gamla testamentið er allt öðruvísi en nýja testamentið þar sem Guð er mikið ljúfari í því nýja, en maður hefði haldið að gamla væri trúverðugara þar sem það er nær gamla tímanum sem Jesú var til á. Og þá má ekki gleyma því heldur að í fornöld var engin tækni og ekkert rafmagn og fljótt flugu fiskisögurnar. Það eru meira segja ennþá í dag að koma upp ýkju sögur um alla hluti. Haldiði að Jesú sé undanskilinn, sérstaklega ef hann var vinsæll? Einhver aðdáandi sá hann baða sig í vatni um kvöld og hann hefur farið í þorpið og sagt að Jesú hafi gengið á vatninu...

Ég held svo sem að jesú hafi verið merkilegur maður, en margt ýkt sem hann átti að hafa gert, en ég trúi að hann hafi boðað fallegan boðskap. En hugsa nú að hann hafi samt riðið og skitið eins og karlmenn gera í dag.

Mín kenning er hinsvegar sú að þetta hafi allt byrjað með Maríu mey. Hún hefur verið 14 ára bóndastelpa sem átti harðbrjósta föður, hún stalst út á nóttinni til að ríða sæta nágrannanum sem var alltaf ber að ofan og sveittur að reka beljurnar í haga á hverjum morgni, hún hefur þar með orðið ólétt og sagði föður sínum að engill hafi komið til hennar og sagt "pabbi ég er ólétt eftir Guð" kallinn hefur trúað því frekar en að fallega litla stelpan hans hafi verið að ríða (ég meina fólk var að trúa á tröll fyrir 100 árum síðan) og greyið jesú verið alinn upp í því að hann sé heilagur og hann hafði gengið um allt með boðskap þegar hann var ungur drengur, heilaþveginn frá blautu barnsbeini. Annað eins hefur svo sem sýnt sig..

en það er bara mín kenning.

En ég er mjög spennt fyrir Davinci lyklinum. Fór á myndina í bíó í kvöld og þótt sum atriði hafi farið í taugarnar á mér, svona smámunasemi, þá fannst mér þetta góð mynd.

best að fara sofa í hausinn á sér og dreyma.


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.05.2006 00:12:33 / rakelgud

kúlurass

Ég er búin að borða mjög vel undanfarið, heilbrigð matarlyst ( er ekki matarlyst skrifuð með Y eða er það matarlist en myndlist er skrifuð með venjulegu "i" svo það hlýtur að vera Y í matarlyst) Held að ég sé að verða lesblind-er oft að efast um sjálfa mig í skriftinni þessa dagana...sem minnir mig á það að ég verð að panta tíma hjá sæta augnlækninum í Mjóddinni. Úff djöfull er hann myndarlegur maður.. langt síðan ég fór til hans að vísu en ég man að mér fannst hann svakalega sjarmerandi. Ekki verra að láta algjöran sjarmör skoða sig hmmm 8)

En nú er ég að fara sofa, varð að fá mér eina Marlboro og leiddist svo ég blogga hér örlítið. Og svona til að segja eitthvað þá er kannski vert að taka það fram að ég er komin með rass, jább gott fólk, ég er komin með góðan rass. Mér tókst að safna rassi og allir segja mér að ég líti mikið betur út. Heilbrigð matarlYst getur nú haft sína kosti. En var hérna pakksödd að skoða mig í speglinum á nærfötunum rétt áðan og tók eftir því að ég er útþanin af söddu, svo ég fór að gera nokkrar magaæfingar...heyrðist bara sullhljóð, allur maturinn hrópandi að hann væri að meltast.

En það er svo gott að sofna saddur og eftir eina sígó. Jæja, best að fá sér góða næturlögn.

gúd nakt people


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 14:10:30 / rakelgud

sveitaferð

Ég og Hildur Hrönn fórum í sveitaferð með leikskólanum hennar. Stuð!! Fullt af dýrum og grillaðar pulsur, róló og fjör.

Fór með hana til læknis í gær, kemur í ljós að hún er með í berkjunum og aftur komin á pensílín. Nýbúin að fá strepptakokka og svo kemur þetta. Hún þarf alltaf fá allt svona hressilega, en er hitalaus og fórum bara í sveitina með krökkunum og svo heim. Best að taka því rólega um sinn, just take it easy.

Ég er að reyna að setja inn mynd af henni frá sveitaferðinni áðan ,ekki gengur það nú vel. Óþolandi GPRS drasl. En vonandi kemur þetta inn einhverntímann og þá set ég sæta mynd af henni með Sóley Maríu sem er besa vinkona hennar á leikskólanum. Þvílíkar dúllur þessar stelpur, sungu "til hamingju Ísland" með Silvíu Nótt alla leiðina heim í rútunni. Og kunna textann frá A til Ö.

Annars er annað í fréttum að við kíktum til Elísabetu í gærkvöldi, hún átti afmæli gær og er nú orðin 24 ára. Óska henni aftur til hamingju hér. Erum ennþá ungar og hressar, svo er stórafmæli á næsta ári, þegar við verðum aldafjórðungs gamlar. ´Fuss, tíminn líður. Ég gaf henni pottasett og pönnu, hnífapör og glös. Very næs. Hún var rosa glöð. Hún setti líka í mig strípur, svaka flott. Báðar glaðar 8) Og hún gaf Hildi Hrönn ónotaðan prinsessukjól af Kristínu Mettu (dóttir hennar) fórum líka til Elísu, hún er kasólétt og gengur vel.

Jæja best að athuga hvort þessi mynd fari ekki að koma sér í gengum loftið og inní tölvuna.


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 12:56:59 / rakelgud

T rex og hiti

Já litla stúlkan mín er með smá hitavellu, en hún var hitalaus í gær. Þannig að ég bjóst við því að þetta myndi bara vera eitthvað stutt og tilkomulítið... en nú ætla ég með hana til læknis og láta taka aftur strok úr hálsinum á henni og athuga hvort helv.. strepptakokkarnir séu ekki farnir. Hún er samt búin að vera á pensílini og allt svoleiðis... en litla stúlkan er eins og Prinsessan á bauninni, viðkvæm snót. Hún hefur soldið lengi í sér flensu ef hún fær hana.

Hildur var í góðum gír á júróvisjonkvöldinu. Gummi og Axel, synir elsta bróður míns komu í heimsókn og þá var stelpan mín nokkuð hress. Við gerðum hús úr stólum með sæng yfir og sátum þar inni með heitt kakó í bollastelli og lékum í bangsaleik og með vasaljós. Eftir það gaf ég stelpunni minni stíl, setti hana í svefninn og kíkti aðeins út á lífið með vinkonum mínum- rosa gaman. Svaf lítið og vaknaði með stelpunni minni í gærmorgun. Og ég hef sjaldan verið eins þreytt, þetta var svipað og að vera heilalaus. Ég var ekki beint þunn...heldur bara þreytt...sem er sko ekkert skárra. En þá var Hildur mín hitalaus og við lékum okkur áfram í stóla húsinu og horfðum á teiknimyndir, keypti handa henni fuglastríð og nýja Tomma&Jenna teiknimynd. Það var ljúft. Sofnuðum snemma í gærkvöldi. Svo er hún með hita í dag. Jább þetta er sjúkrasaga gott fólk.

Það sem er annað í fréttum er að mér finnst ég óhemju lík grameðlunni Tyrannosauros Rex eða T-Rex. Með stórt andlit og lítil augu.

já og ég þarf að fara á bókasafnið og ég þarf að hringja á nokkra staði og fara svo með Hrönn til læknis. Best að fá sér ristað brauð og koma sér af stað.


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.05.2006 12:19:41 / rakelgud

lasarus

Oh ömurlegt, Hrönn litla aftur komin með hita. Hvernig stendur á þessu eiginlega? Ég sá það um leið og hún vaknaði í morgun. Getur það verið vegna þess að við fórum í sund í gær, þótt hún hafi ekki verið með nein merki um lasleika? Hún er voðalega viðkvæm fyrir flensu....nýbúin að vera með strepptakokka og svo kemur hitavella núna. Vonandi er þetta eitthvað tilfallandi sem er búið í kvöld. Vonandi. Uff, ég þarf að fara kaupa stíla.

Ég er ógisslega þreytt eitthvað. Fór að horfa á bíómyndir í gærkvöldi og sofnaði seinna en ég ætlaði mér. Kaffið ekkert að virka. Kannski leggjum við okkur bara. En við erum að horfa á Anastasíu teiknimyndina núna. Liggjum í bælinu. Væri alveg til í að leggja mig með henni ef hún gæti sofnað aðeins.

Ekkert verður úr djammi þessa helgina. Svona er þetta nú. Æ, best að hella uppá rótsterkt kaffi og reyna gera eitthvað. Efast um að hún vilji leggja sig. Förum kannski  bara í dúkkuleik. Æ litla krílið mitt...um leið og ég byrja að monta mig að hún sé ekki búin að vera lasin lengi þá byrjar lasarus. Og ég held að ég sé með ristilkrampa. Þetta er nú meiri vitleysan. Mér er illt í maganum og hún með hita. Fúlt.

Sendið okkur hlýjar hugsanir...


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.05.2006 10:26:26 / rakelgud

sucky fucky

Það suckar feitt að Silvía Nótt komst ekki áfram. En var hún full eða dópuð í viðtalinu sem kom í fréttunum. Það var soldið spúkí hvernig hún var þar.

En ég kaus Litháen. Ég fíla grín.

Það verður samt djammað um helgina því Silvía var sigurvegari í mínum huga.


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.05.2006 19:00:02 / rakelgud

ræningjar og ruplarar

glimmerbrosið er nú orðið glimmer skeifa! :evil:

Einhverjir illa innrættir strákpjattar rændu hlaupahjólinu hennar Hildar Hrannar seinnipartinn í dag og sást til þeirra vera leika sér á því um klukkan 17. Bleika skrautið lá uppí götunni og ég hljóp eins og grýla upp í hólana til að athuga hvort ég gæti nú séð til ræningjana, með slitið skrautið í krepptum hnefunum og stingandi augnaráð. Hlakkaði til að koma auga á drengina, koma þrammandi að þeim og húðskamma þá... já mig langaði að ganga svo langt að fara heim til þeirra og segja foreldrum þeirra frá ódáðaverkum barna þeirra og skipa foreldrunum að ganga úr skugga um að börn þeirra skilji hvað þjófnaður er. Því svona hegðun lofar ekki góðu fyrir framtíðina.

En allt kom fyrir ekki, þessir tilvonandi glæpamenn þjóðarinnar eru löngu á bak og burt og við munum aldrei sjá hlaupahjólið aftur. Hér sit ég, reið og pirruð því þetta var eina skiptið sem ég skilaði ekki hlaupahjólinu strax inní bílskúr eftir að Hrönn var búin að leika sér á því. Þetta fína einbýlishúsahverfi er greinilega ekkert betra en fellahverfið nú orðið. Ég er reið og pirruð skal ég segja ykkur, lekur hor eftir öll hlaupin og með eplarjóðar kinnar eftir svalan vindinn og sennilega rauð af gremju líka. Hrönn ekki alveg að fatta það sem hefur skeð og virðist vera nokkuð sama... sagði mér að kaupa bara nýtt. Sú er bjartsýn, ég er nýbúin að kaupa prinsessu reiðhjól með hjálparadekkjum á 12 þúsund kall og annað hjól verður ekki keypt þetta sumarið.

Jæja, best að fara elda og reyna jafna sig á þessu.

Note to self: Passa að læsa alltaf hjólið inní bílskúr strax og geyma ekkert úti á stétt sem er vert að stela og læsa alltaf bílnum líka. Reykjavík er svo sannarlega orðin borg óttans.


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.05.2006 12:55:23 / rakelgud

idol glens

Ég hlakka til að tjútta næstu helgi, með glimmer á augum og vörum og ég verð að kíkja í þessa umræddu búð Glamúr og gá hvort ég finni gullskó 8) og svo ætla ég að dansa svakalega við lagið með Madonnu " I dont wanna feel, I dont want to know..." Ef einhver veit hvað þetta lag heitir, endilega tell me svo ég geti beðið um óskalag, hata þegar ég pikka í DJ og fer að syngja það sem ég vil heyra... en merkilegt nokk að ég hef nú allavega fengið óskalagið mitt, svo kannski er spurning hvort ég taki þátt í næsta Idol :D

ehe, djók.... mamma myndi fara norður og niður í skömm því ég kæmi í sjónvarpinu með lélegu fíflunum í upphafi þáttanna...sem mér finnst by the way vera lang skemmtilegast við þessa þætti.

ble í bil


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.05.2006 13:20:28 / rakelgud

hláturinn lengir lífið

Mér til mikilla mæðu þá hef ég komist að því að ég hef engan húmor. Það er alveg merkilegt hvað mér finnst litlir hlutir vera fyndnir. Einhver vinkona hennar Dísu notar orðið "úlli" fyrir unglingur og mörg önnur orð sem styttingu... en þegar ég sé svona þá brosi ég útí annað munnvikið eða jafnvel skellihlæ og svona litlir hlutir geta verið mitt gleðiefni um langt skeið. Kata skrifaði á myspace-inu hennar Tinnu að henni langi á djammið með henni, dansa á dansgólfi og skilja eftir slóð af brostnum hjörtum í kringum sig. Þetta fannst mér ótrúlega fyndið. Dísa er náttúrulega frábær penni og gleður marga með skrifum sínum. Kata segir reyndar mjög oft eitthvað ótrúlega sniðugt-en það hef ég bara séð á kommentum því ég veit ekki til að sú stúlka sé bloggandi, sem er skömm því það myndi eflaust vera vinsælt, Tinna á það til að vera orðheppin líka og ég brosi oft útí annað þegar ég les hennar blogg. Mér finnst Anna Soffía vera algjör snillingur, það er einhvernveginn allt fyndið á blogginu hennar. Og ég er mjög fegin að geta komist inná síðuna hennar aftur, en það var eitthvað að tölvunni minni og ég barasta komst ekki inná síðuna hennar í langan tíma. Skrifaði Önnu meil þar sem ég varð að spyrja hana hvort ég væri block á síðunni hennar og fleira nördalegt...en hún tjáði mér að svo var ekki...

Allavega, það eru til sjálfshjálparbækur um margt...kannski er til bók sem segir í 10 skrefum hvernig á að vera fyndinn. Því það er alveg kominn tími á það. Ég þarf að fara læra brandara. Verst að ég gleymi öllum bröndurum 5 mínútum eftir að ég heyri þá, meira segja góðum bröndurum. Og kaldhæðnislega við þetta allt saman er að mig langaði alltaf að vera uppistandari og grínari einu sinni...frekar súrt  ;)

Múff.... það er ekki sneddý að vera alvarleg manneskja og sjúkdómahrædd í þokkabót, með meiru. Hitti stelpu í gær sem fékk krabbamein í skjaldkirtil þegar hún var 17 ára...og merkilegt hvað mér er búið að vera illt í skjaldkirtlinum mínum eftir að ég heyrði alla sjúkdómssöguna hennar. Best að panta sónar á hálsinn og lungnamyndatöku hjá Skúla lækni. Ég þarf líka að fara til augnlæknis og heyrnalæknis og líka athuga jafnvægið og blóðprufu-það er reyndar ekkert langt síðan ég fór í blóðrannsókn og það kom út fullkomið, sem létti mér lund um stund. En ég er að fara í rannsókn á eftir um nikótinfíkn...verið að rannsaka erfðamengi og eitthvað slíkt. Kemur örugglega eitthvað grunsamlegt úr úr því. En vil benda á að það er aðeins 2 og hálft ár síðan ég byrjaði aftur að reykja, eftir að ég var hætt í 2 og hálft ár og var antí smóker! Ekki spyrja mig hvernig ég byrjaði að reykja aftur, því ég skil það ekki sjálf, byrjaði eitthvað útaf því ég varð að púffa eina rettu í tilefni jólanna og svo aftur í tilefni gamlárskvöld ...

Anyway ble í bili


» 9 hafa sagt sína skoðun

14.05.2006 13:59:42 / rakelgud

Mark my darling

ó mæ god, mig dreymdi að ég væri kærastan hans Mark Whalbergs í nótt:^) jesús minn hvað þetta var góður draumur, reyndar var hann að halda framhjá mér með 2 öðrum stelpum en þetta var svo mikill drami og ástríða að ég get ekki hætt að hugsa um drauminn .....shæse!

jæja, ég og Hildur Hrönn erum á leiðinni í 5 ára afmæli. Ég bakaði afmæliskökuna og hlakka til að smakka hvernig tókst til. :) Muna að taka myndavélina með, kaupa pakka og finna spariskóna.

Yndislegt veður úti, allir að klára prófin, sól í Esjunni og lykt af sumari.... svo sannarlega góður dagur. Enjoy yourself people.

Jæja, best að fara drífa sig og rifja upp drauminn aftur :haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8